Bent & Guðrún
10.07.2027
Almennar upplýsingar
Brúðkaupsveislan verður haldin í Hróarsholti, sem er um 1 klst akstur frá Reykjavík. Dagskráin hefst kl 16:30 en nánari upplýsingar verða aðgengilegar síðar. Við vonum að þið getið komið og fagnað með okkur.
DagssetningLaugardagur, 10. júlí 2027
StaðsetningHróarsholt, 803 Flóahreppi (sjá kort)
AðgengiÞað er nóg af bílastæðum á svæðinu. Möguleiki er að það verði boðið upp á rútuferðir til og frá gististöðunum í Vatnsholti og á Lambastöðum.
AldurstakmarkVinsamlegast athugið að veislan er aðeins ætluð 16 ára og eldri.
KlæðaburðurLitríkur og hátíðlegur. Sniðugt væri að hafa meðferðis aukafatnað/skó miðað við veður og aðstæður.
GistingVið erum búin að taka frá 10 herbergi á Hótel Lambastöðum og 30 herbergi á Hótel Vatnsholti. Nánari upplýsingar varðandi mismunandi herbergi og kostnað má nálgast í gegnum "Nánari gistiupplýsingar" hnappinn hér að neðan. Einnig verður svæði til að tjalda í Hróarsholti ef áhugi er fyrir því.
Hróarsholt · Ísland · 64.2552° N, 21.1301° W
RSVP
Vinsamlegast svarið fyrir 1. nóvember 2026
Gestagallerí
Myndir!
Endilega setjið inn skemmtilegar myndir frá brúðkaupinu í gestagalleríið okkar. Þið getið líka skoðað myndir annarra gesta.
Skoða gallerí
